Íbúasamtök 3. hverfis
 

Áskorun til borgaryfirvalda

Við undirrituð skorum á borgaryfirvöld að tryggja í skipulagi borgarinnar að reitur sunnan Sundhallarinnar í Reykjavík verði frátekinn fyrir útisundlaug við Sundhöllina og að hefja sem allra fyrst undirbúning, skipulag og byggingu útisundlaugar á þeim reit.

Eftir að ljóst er að lóðin sunnan Sundahallarinnar hefur verið frátekin fyrir útisundlaug, höfum við lokað fyrir frekari undirskriftir við listann.

Alls skráðu rúmlega 800 manns sig á áskorunina hér á vefnum og á undirskriftalista sem lá frammi í sundhöllinni.

Við þökkum öllum þeim sem skráðu sig á áskorunina.

Hægt er að sjá skráningar á vefnum á áskorunina hér. 

Um meðferð skráðra upplýsinga á vef Íbúasamtaka 3. hverfis má lesa hér.